!!! Heimur Rabbabararúnu !!!

*Hafrún*

14.06.2007 22:08:39 / hafrunma

14.06.07

\"\"

 

Hlakka svo til, en núna er lokahnykkurinn á undirbúningu fyrir Leiðarljós teitið ;) sem ég held að bara sem flestir séu boðnir í, finnst alltaf vera að bætast við;)

En auðvitað þið sem eruð í burtu og komist ekki, don´t worry ég læt myndir inn af okkur í herlegheitunum;) kannski kemur mynd á morgun, fyrir teiti, til að þið sjáið af hverju þið missið. Annars er brjálað að gera hjá mér, vinna á morgun, panta, vinna á laugardaginn, held ég noti bara föstudagskvöldið og nóttina til að undirbúa teitið :) Ef þig lagnar að hjálpa, endilega hafðu samband;)

Annars segji ég bara góða helgi, og gleðilegan Þjóðhátíðardag ;) \"\"

Þangð til næst, hafið það gott !!!!


» 9 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 20:17:34 / hafrunma

Andlaust

  • er svo andlaus þessa dagana, erum á fullu að undirbúa Guiding Light smá teitið okkar,
  • er stundum svo utan við mig að ég fatta það löngu seinna, þegar fólk er að tala við mig út í búð heheh.
  • En já ég var beðin að koma með gjafalista, er ekki alveg að höndla það, langar samt í eyrnarlokka, húfu, trefil, vettlinga, og já svo væri bara fínt að fá gjafabréf, því ekki veit ég neitt sem mig langar ótrúlega mikið í sem aðrir gætu valið fyrir mig ;)
  • Kannski er þetta frekja, en ég má bara ekki vera að því að hugsa um hvað mig langar í, er á fullu að reyna að undirbúa smáréttina og það;)

Annars endilega láttu vita hvort þú mætir í Guiding Light teiti;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 21:14:03 / hafrunma

Ef

  • að þú varst það heppinn að fá eða að sjá boðskortið frá mér & Stínu, þá ertu svo heppinn að vera að koma í Guiding Light smá teiti ;) bráðlega
  • Annars allt við það sama, fór á Riis um síðustu helgi, það var gríðarlega mikill munur að það má ekki reykja inni, maður angaði ekki eins og strompur, en það fyndna var að þegar fólki datt í hug að fara út að reykja þá fóru alltaf allir eða flestir saman, þannig að þá vorum við sem ekki reykjum bara örfá inná staðnum.
  • Stína og Þröstur giftu sig um daginn, til lukku með það 8)

» 4 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 18:51:38 / hafrunma

.....

Í borginni

Búin að bralla ýmislegt

Fór í afmæli í Keflavík, takk fyrir mig Brynja og Björk og til lukku með 30 árin

Einnig var frábær félagsskapur á leiðinni takk fyrir þaðJ

Fór í Kringluna að leita að eitthverju Kántrý, og já veistu það að ég er hætt við Kántrýþema, því það er ekkert þannig að hafa í borginni,

Ákvað að hafa bara rugl þema, skrípa þema held ég, á eftir að ræða þetta við félaga minn, kemur alveg ákveðið í næsta bloggi.

Annars fór ég til tannsa í dag og fer til hins læknisins á morgun, og já svo kem ég aftur heim;) fríið frá mér er alveg að verða búið

 Hlakka til að sjá ykkur öll J 

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 00:19:54 / hafrunma

Afmæli ?

  • Þar sem ég verð líklega að vinna á afmælinu mínu á skemmtilegasta degi ársins, sjá frétt sem kom á strandir.is
  •   Samkvæmt rannsóknum færustu sálfræðinga er dagurinn í dag 22 janúar versti dagur ársins. Fyrir því eru nokkrar ástæður. Kvef eða flensa herjar væntanlega á einhvern í fjölskyldunni og hátíðarskapið er algjörlega horfið um þetta leyti. Við bætast yfirþyrmandi áhyggjur af jólaskuldunum og leiði yfir því að ekki tókst að standa við nýársheitin sem hafa venjulega verið svikin um þetta leyti. Skammdegið og veðurfarið hefur einnig slæm áhrif á fólk á þessum degi. Heil vinnuvika er framundan og verulegur skortur á hressu og skemmtilegu fólki til að lífga upp á tilveruna. Skemmtilegasti dagur ársins er hins vegar 23. júní samkvæmt sömu snillingum
  • þá er ég að hugsa um að bregða mér í borgina, og fara í afmæli hjá Brynju og Björk, er komin með far til  Reykjavíkur, bara spurning hvernig við komumst til Keflavíkur,
  • bíður enginn sig fram í að vera bílstjóri?
  • Fer svo ýmislegt að bralla í borginni, læknaves, og margt fleira, kem svo til baka með fjölskyldunni í BR.Vík 22 ;) sem verður stuð;)
  • En já fór inn á Ósi í kvöld í heimsókn til hennar Önnu og Hemma, það var mikil gleði, kíkti svo á hana Ásu í sjoppuna, það var álíka mikil gleði ;)

En já farin að sofa, til að ég sofi ekki yfir mig á að mæta í lagfæringu á litun kl 09 í fyrramálið;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 20:55:25 / hafrunma

í gær

fórum við Anna Þórunn að hjálpa til við að leggja þökur á íþróttavöllinn bak við sundlaugina, það var nú ekkert svakalega góð mæting þarna, þegar við komum voru 2, svo komum við tvær og svo komu þrír í viðbót, já sem sé 7 manns lét sjá sig þarna. og já tveir strákar, sem voru fljótir að láta sig hverfa þegar við sáum ekki til.

 

En já annars ekkert að frétta, bónaði bifreiðina í dag í góða veðrinu á Hólmvík, var ótrúlega vel klædd enda ótrúlega lúmskt kalt.8|

Vonandi fer nú sumarið að koma, langar samt að komast smá í sauðburð , spurning hvað helgin ber í skauti sér, hvort maður bregði sér af bæ?

 

Það kemur í ljós, jæja vinnudagur á morgun, og vá það verður svo mikill mánudagur að hálfa væri helling, ruglast svo í ríminu þegar það er frí inní miðri viku :)

 

Hafið það gott þangað til næst, en já er að vinna í myndasíðu;)  


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 19:44:40 / hafrunma

Hvaða

ókeypis myndaalbúmi á netinu mælirðu með?

Þarf að fara að koma mér upp myndasíðu, endilega komdu með tillögu;)

Til lukku með sigurinn í Eurovision, Serbía, finnst lagið batna með hverri hlustun, ekki að mér hafi fundist það leiðinilegt!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 23:09:24 / hafrunma

Eurovision

Ég hafði nú rétt fyrir mér með eitt land, það var Hvíta Rússland, work your magic, get haldið með því á laugardaginn, eins fannst mér Georgía ágætt, held ég, og svo kannski þarna lagið sem stelpan söng, og þær voru nokkrar saman og stóðu eiginilega alveg kyrrar allt lagið, ættu að fá verðlaun fyrir að geta verið svona mikið kjurrar:)

 EN annars eru þetta löndin sem komust áfram:

Hvítarússland , Makedónía, Slóvenía, Ungverjaland, Georgía, Lettland,  Serbía, Búlgaría,Tyrkland, Moldavía.

 

Hvar eru þessi lönd?? Liggja þau öll hlið við hlið?

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 23:32:09 / hafrunma

Þá byrjar ballið

  • Fyrst Eurovision
  • svo kosningar
  • svo Eurovision aftur

hmm ég hlakka svo til að horfa á þetta á morgun, En þig?

Hvaða landi heldurðu með? ég held svona eiginilega bara með Danmörk, Hvíta-Rússlandi en mest með honum dj.Bobo í Sviss;) finnst eitthvað flott við vampýrulagið;)

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 19:58:21 / hafrunma

Margt brallað

  • byrjaði daginn snemma á því að fara í jarðarför hjá Bensa, blessuð sé minning hans
  • Fór svo út í Tungu að sjá lömbin, og já hitta fólkið,
  • stoppuðum þar heillengi, þurfti að pranga upp á þau msni8)
  • fórum svo heim á bifreiðinni, ég , Begga, Kristný og Guðjón

er búin að vera heima að þrífa síðan, doldið skítugur greyið,

en já fékk heimsókn áðan, frá henni Kristínu, lítur alveg ljómandi vel út, kom manni til að langa til að fara á danska;) eru þið með?

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 12:39:50 / hafrunma

Þema ??

Núna styttist óðum í afmælið okkar Stínu, sem mér skildist að við ætlum að halda upp á 16 júní.. á eftir að ræða það :) en já endilega kommentaðu, hvaða þema er hægt að gera með svona stuttum fyrirvara, og ekki of flókinn???

 

Með fyrirframm þökkum fyrir hjálpina.. HM og KS


» 12 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 12:36:19 / hafrunma

Leti og sól

Undarlegt hvað maður verður dasaður þegar það er mikil sól og mikill hiti..

En ég fór á þotu uppá Steingrímsfjarðarheiði á laugardaginn með pabba og Kristnýju, það var ok, en ég sökk bara í snjóinn, því það var svo heitt og pabbi sökk líka og sá ekki skíðin sín, en við renndum okkur nokkrar ferðir, fórum svo út í móa og borðuðum nestið okkar,

 fórum svo fljótlega bara heim og gerðum ekki mikið eftir það, horfðum svo á Narníu og ævintýraskápinn um kvöldið, ég man ekki eftir að hafa séð þetta áður.

Í gær var svo líka ótrúlega gott veður, pabbi og kristný fóru að sjá lambið hjá frænda, en ég nennti ekki með, ég fór bara út að labba með Kristjönu og Emmu, mikil gleði, grilluðum svo að Fagratúni og svo heim að læra um kvöldið

Í dag er svo aftur gott veður, en sem betur fer(því ég er lokuð inní ksh ) er ekki mikil sól, en held samt að það sé heitara úti heldur en inni.

En já Karen til lukku með daginn 28 apríl

og Kolfinna Líf og Sigurður Kári til lukku með 29 apríl :)

Hafið það gott,


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 23:46:49 / hafrunma

Gleði gleði gleði

Valsmenn eru Íslandsmeistarar karla 2007

Valsmenn eru Íslandsmeistarar karla í handknattleik 2007 eftir sigur á Haukum, 33:31, í hörkuspennandi leik á Ásvöllum. Úrslitin réðust ekki fyrr en í blálokin þegar Ingvar Árnason skoraði 33. mark Vals. HK-ingar þurftu að treysta á að Valsmenn töpuðu stigi og vinna sjálfir á Akureyri en úrslit þar urðu 27:27.

 

eins og þið sjáið þá er gleði hjá Valsmönnum;) frábært alveg :) horfði spennt á leikinn í dag og já ég vann !!!!  Hef haldið með Val frá því að Ólafur Stefáns og Dagur Sigurðsson voru upp á sitt besta í Valsliðinu :) Áfram Valur !!

En já Anna þórunn til lukku með daginn í dag,

Nína til lukku með daginn í gær

og Ása til lukku með daginn á morgun ;)

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 12:28:20 / hafrunma

Gleðilegt sumar ;)

Gleðilegt sumar allir sem nenna að lesa (og líka þeir sem þora ekki að kommenta)

 

Hafið það gott, og njótið gluggaveðursins í dag :)

 vonandi verður ekki bara gluggaveður eða svona veður í sumar ;)

En já í tilefni dagsins, og gluggaveðursins, ætlum við að grilla :)

» 6 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 20:52:57 / hafrunma

síðasti vetrardagur

 Brandari í tilefni af síðasta vetrardegi :)

Það var ung og falleg stúlka sem var svo niðurdregin og hrygg að hún ákvað að binda endi á þetta allt og fyrirfara sér með því að stökkva í höfnina.

Hún stóð á hafnarbakkanum en þegar hún ætlaði að stökkva kemur til hennar ungur sjómaður og spurði hana hvers vegna hún væri að gráta.

Hún sagðist ætla að fyrirfara sér.

Honum fannst það synd og sagði við hana að hún hefði mikið að lifa fyrir. "Skipið mitt siglir til Ameríku á morgun,ef þú vilt skal ég lauma þér með. " Hann færði sig nær stúlkunni og tók utan um hana og hvíslaði að henni," ef þú verður góð við mig verð ég góður við þig"."Já"
sagði stúlkan "hverju hef ég að tapa? "

Um nóttina laumaði hann henni um borð í skipið og faldi hana í einum björgunarbátnum.

Hann færði henni annað slagið mat og drykk og í hvert skipti elskuðust þau heitt og innilega.

Þrem vikum seinna var skipstjórinn á venjulegri eftirlitsferð og fann hana í björgunarbátnum. Hann spurði hana hvað hún væri að gera þarna.
Hún sagði honum eins og var að sjómaðurinn væri að lauma henni til Ameríku en í staðinn svæfi hún hjá honum.

Þá sagði skipstjórinn:


"Þú hefur verið plötuð laglega núna, þetta er Herjólfur."


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 21
Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2010
Klukkan